Að fara niður í miðbæ Reykjavíkur á venjulegum laugardegi í október, vopnaður tveimur myndavélum, hvað veiðir maður þá? Hér er afraksturinn, því birtan, mannlífið í höfuðborginni kemur manni alltaf á óvart. Því maður veit ekki hvaða augnablik, myndefni eða stemningu maður ratar á. Reykjavík er nefnilega alltaf spennandi. Borg sem kemur manni alltaf jafn mikið á óvart. Þótt að maður þykist þekkja hana, eftir að hafa alið manninn þarna í sextíu ár, plús.
Reykjavík 08/10/2022 : A7R IV, RX1R II – FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson