Níundi fjölmennasti bær landsins er Akranes, með rúmlega átta þúsund íbúa. Bærinn er í sjónlínu beint norður af Reykjavík, yfir Kollafjörð / Faxaflóa. Það tekur ekki nema 45 mín að skreppa þangað frá höfuðborginni, í gegnum Hvalfjarðargöngin sem opnuð voru 1998. Enda eru margir íbúar bæjarins sem sækja vinnu á höfuðborgarsvæðið. Akranes er að mörgu leyti fallegur og sérstakur bær, þar sem ferðaþjónusta er ekki í fyrsta sæti þrátt fyrir náttúru, sérstakan miðbæ og einstaklega fallegar strandlengjur. Akranes er fyrst og fremst fiskvinnslu og iðnaðarbær, líka þekktur fyrir ÍA knattspyrnufélagið sem hefur verið í fremstu röð í landinu síðan knattspyrna nam land á Íslandi. Þéttbýli byrjar að myndast á Skipaskaga, vestasta hluta Akranes um þar síðustu aldamót, vegna góðrar náttúrlegar hafnar, og stutt á miðin. Síðan hefur bænum vaxið fiskur um hrygg, orðin einn af stærstu bæjum landsins. Icelandic Times / Land & Saga lagði land undir fót, hér kemur myndasyrpa frá þessum fallega bæ sem býður uppá svo margt, meðalannars bestu baðströnd landsins á Langasandi.
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2024/05/RIV4632.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=1170,/wp-content/uploads/2024/05/RIV4633.jpg?resize=1170%2C1170&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=1170,/wp-content/uploads/2024/05/7CR00578-1.jpg?resize=1170%2C1170&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=1170,/wp-content/uploads/2024/05/7CR00582-1.jpg?resize=1170%2C1170&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2024/05/RIV4588.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=1170,/wp-content/uploads/2024/05/RIV4604.jpg?resize=1170%2C1170&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2024/05/RIV4613.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2024/05/RIV4618.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2024/05/RIV4626.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=1170,/wp-content/uploads/2024/05/RIV4629.jpg?resize=1170%2C1170&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=1170,height=780,/wp-content/uploads/2024/05/RIV4647.jpg?resize=1170%2C780&ssl=1)
Ísland 07/05/2024 : A7C R, A7R IV – FE 1.4/24mm GM, FE 2.8/100mm GM
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson