Júlí er hlýr á Íslandi… meðalhitinn liggur í kringum 11°C / 52°F, og munar sáralitlu milli landshluta. Meðalhitinn í Reykjavík síðu þrjátíu árin er 11.7°C / 53.06°F, á Egilsstöðum fyrir austan er hann, gráðu lægri, eða 10.7°C /51.26°F. Á Akureyri fyrir norðan er hann 11.3°C / 52.34°F, meðan hann er sléttar 10°C /50°F í Bolungarvík, vestur á fjörðum. Á Hveravöllum, á miðju hálendinu er hann 8.3°C / 46.94°F sem er býsna gott, en Hveravellir liggja í tæplega 700 metra hæð (2000 ft) yfir sjávarmáli. Í Vestmannaeyjum, syðstu veðurstöð landsins er meðalhiti síðustu þrjátíu ára 9.8°C / 49.64°F. Sumarið er auðvitað dásamlegur tími, þegar það er svona hlýtt… enda bjart allan sólarhringinn, og landið fær þennan græna svip, sem er svo fallegur. Hér koma sumargrænar myndir frá Íslandi.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík 08/07/2025 – RX1R II, A7R IV : 2.0/35mm Z, FE 2.8/100mm GM, FE 1.4/85mm GM



