Hlýtt á Íslandi?

Júlí er hlýr á Íslandi… meðalhitinn liggur í kringum 11°C / 52°F, og munar sáralitlu milli landshluta. Meðalhitinn í Reykjavík síðu þrjátíu árin er 11.7°C / 53.06°F, á Egilsstöðum fyrir austan er hann, gráðu lægri, eða  10.7°C /51.26°F. Á Akureyri fyrir norðan er hann 11.3°C / 52.34°F, meðan hann er sléttar 10°C /50°F í Bolungarvík, vestur á fjörðum. Á Hveravöllum, á miðju hálendinu er hann 8.3°C / 46.94°F sem er býsna gott, en Hveravellir liggja í tæplega 700 metra hæð (2000 ft) yfir sjávarmáli. Í Vestmannaeyjum, syðstu veðurstöð landsins er meðalhiti síðustu þrjátíu ára 9.8°C / 49.64°F. Sumarið er auðvitað dásamlegur tími, þegar það er svona hlýtt… enda bjart allan sólarhringinn, og landið fær þennan græna svip, sem er svo fallegur. Hér koma sumargrænar myndir frá Íslandi.

Fagurgrænn, Jökuldalur að Fjallabaki
Lítill foss, rétt austan við Vík í Mýrdal
Grænt land, undir Eyjafjöllum
Grænt nes, Veiðivötnum
Grænn steinn í Skaftá, austur í Vestur-Skaftafellssýslu
Nýslegið tún í Þingvallasveit
Krossneslaug, norður á Ströndum

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Reykjavík 08/07/2025 – RX1R II, A7R IV : 2.0/35mm Z, FE 2.8/100mm GM, FE 1.4/85mm GM