Arnarnesvegur og yfir Vatnsendahverfið

Í hæstu hæðum, 70 ára

Kópavogur, annað fjölmennasta bæjarfélag landsins er sjötíu ára í ár; en kaupstaðurinn fékk kaupstaðarréttindi í maí 1955, eftir að hafa sagt skilið við Seltjarnarneshrepp og orðið sjálfstæður hreppur árið 1948. Þegar bærinn fær kaupstaðaréttindi voru íbúar bæjarins 3.800, í dag eru þeir, sjötíu árum seinna 41.500, rúmlega 12% þjóðarinnar. Kópavogur skiptist í dag í fimm hverfi, Kársnes og Digranes sem eru elst, og síðan nýju hverfinu, Smárinn, Fífuhvamm og Vatnsenda, nýjasta hverfið, sem byrjað var að byggja árið 2004, og er enn í byggingu. Á Vatnsendahæðin, er hæsta byggðin á höfuðborgarsvæðinu, í rúmlega 140 metra hæð yfir sjávarmáli, með frábæru útsýni yfir allt höfuðborgarsvæðið. Þar reisti Ríkisútvarpið endurvarpsstöð fyrir allt landið, þegar útvarpssendingar hófust á Íslandi árið 1930. Fyrstu útsendingar sjónvarpsins, árið 1966, voru sendar út frá Vatnsenda. Það var ekki fyrr en um síðustu aldamót, með nýrri og breyttri tækni, sem Ríkisútvarpið hætti sendingum frá Vatnsendahæð. Kópavogsbær kaupir landið af ríkinu árið 2002, til að skipuleggja byggð og útivistarsvæði. Icelandic Times / Land & Saga fór upp í hæstu hæðir, og tók púlsinn á tveimur nýjustu hverfunum í þessum 70 ára gamla bæ, sem heitir… Kópavogur. 

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Kópavogur 20/09/2025 – A7C R : FE 1.8/135mm GM