Veturinn getur verið yndislegur. Sérstaklega norður í landi, þar sem snjórinn er meiri en sunnan heiða. Icelandic Times, Land & Saga fór norður til að festa á filmu náttúruna sem er einstök á þessum árstíma, hvort sem maður glímir við myndir í lit eða svarthvítu. Það eru fáir á ferð, hér eru myndir bæði úr Eyjafirði, og norður og austur í Suður-Þingeyjarsýslu, sem hjálpa ykkur að ferðast í huganum norður í land. Hlakka mikið til að sjá ykkur fljótlega, fyrir norðan.







Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Norðurland : 05/02/2026 – GFX 100 RF, GFX 100 II, A7CR – 4.0/35mm, 1.7/55mm, 1.8/135mm GM



