Fyrir norðan

Veturinn getur verið yndislegur. Sérstaklega norður í landi, þar sem snjórinn er meiri en sunnan heiða. Icelandic Times, Land & Saga fór norður til að festa á filmu náttúruna sem er einstök á þessum árstíma, hvort sem maður glímir við myndir í lit eða svarthvítu. Það eru fáir á ferð, hér eru myndir bæði úr Eyjafirði, og norður og austur í Suður-Þingeyjarsýslu, sem hjálpa ykkur að ferðast í huganum norður í land. Hlakka mikið til að sjá ykkur fljótlega, fyrir norðan.

Hrímuð grös í Fnjóskadal
Stórihnjúkur, austan við Laufás í Eyjafirði
Háland er efsta byggðin á Akureyri, fjallið Súlur í bakgrunni
Við Goðafoss í Skjálfandafljóti
Þjóðvegur 1, í Ljósavatnsskarði, milli Akureyrar og Mývatns… og líka norðaustur á Grjótnes
Kirkjan á Hálsi í Fnjóskadal, byggð árið 1859
Horft í norðaustur yfir Eyjafjörð, frá Hlíðarfjalli, fyrir ofan Akureyri

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Norðurland : 05/02/2026 – GFX 100 RF, GFX 100 II, A7CR – 4.0/35mm, 1.7/55mm, 1.8/135mm GM