Reykjavík er frábær. Þrátt fyrir að vera alinn upp, og búið í höfuðborginni nær alla æfi, kemur borgin alltaf á óvart. Það er alltaf eitthvað nýtt, sem maður sér… og upplifir. Eins og í dag, þegar Icelandic Times / Land & Saga tók góðan fimm tíma göngutúr um höfuðborgina, með eina myndavél með fastri 35 mm linsu til að taka myndir. Sýna Reykjavík eins og hún er… hér eru sýnishorn, af einhverju sem var, akkúrat þá og nú. Eitthvað sem datt fyrir myndasmiðinn, og gerir hversdaginn, jafn áhugaverðan og húllum-hæ á tyllidögum. Áfram Reykjavík, nyrsta höfuðborg heims, með Nuuk á Grænlandi, en þær eru upp á punkt og prik á sömu norðlægu breiddargráðunni, þeirri 64°.








Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 07/02/2026 – GFX 100 RF – 4.0/35mm



