Minnisvarði um Sankti Jósefsystur við Landakotskirkju, gert af Steinunni Þórarinsdóttur, árið 2000, en þær störfuð á Íslandi frá árinu 1896. Samtals voru þær 140 talsins, frá 11 þjóðlöndum. Síðustu þrjár systurnar fóru til síns heima árið 2001

Svona er Reykjavík


Reykjavík er frábær. Þrátt fyrir að vera alinn upp, og búið í höfuðborginni nær alla æfi, kemur borgin alltaf á óvart. Það er alltaf eitthvað nýtt, sem maður sér… og upplifir. Eins og í dag, þegar Icelandic Times / Land & Saga tók góðan fimm tíma göngutúr um höfuðborgina, með eina myndavél með fastri 35 mm linsu til að taka myndir. Sýna Reykjavík eins og hún er… hér eru sýnishorn, af einhverju sem var, akkúrat þá og nú. Eitthvað sem datt fyrir myndasmiðinn, og gerir hversdaginn, jafn áhugaverðan og húllum-hæ á tyllidögum. Áfram Reykjavík, nyrsta höfuðborg heims, með Nuuk á Grænlandi, en þær eru upp á punkt og prik á sömu norðlægu breiddargráðunni, þeirri 64°. 

Nýbygging við Alþingishúsið, við Austurvöll
Nýtt verk eftir Steinunni Þórarinsdóttur í Reykjastræti, til hægri, Landsbankinn og Utanríkisráðuneytið, til vinstri, The Reykjavík Edition hotel
 Stássleg Harpa

Sætt vín á horni Vesturgötu og Aðalstrætis, elstu götur höfuðborgarinnar
Hvalbátarnir í Reykjavíkurhöfn775 Stássleg Harpa
Ferðamenn koma úr siglingu um sundin blá, Harpa í bakgrunni
Minnisvarði um Sankti Jósefsystur við Landakotskirkju, gert af Steinunni Þórarinsdóttur, árið 2000, en þær störfuð á Íslandi frá árinu 1896. Samtals voru þær 140 talsins, frá 11 þjóðlöndum. Síðustu þrjár systurnar fóru til síns heima árið 2001
Leiði í Hólavallakirkjugarði, en garðurinn opnaði 1838

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 07/02/2026 – GFX 100 RF – 4.0/35mm