Menntaskólinn í Reykjavík, eða M.R. hefur verið staðsettur í Reykjavík frá árinu 1846, en á rætur sínar að rekja til ársins 1056, eða í eittþúsund og sjötíu ár. Það var Ísleifur Gissurarson, fyrsti biskupinn á Íslandi, sem stofnaði Skálholtsskóla, eftir að hannttekur biskupsvígslu og situr í Skálholti árið 1056. Þar er skólinn, æðsta menntastofnun landsins fram til 1785, en í móðuharðindunum, flyst skólinn og biskupssetrið frá Skálholti til Reykjavíkur, þar sem hann er i kofa við Hólavallagötu sem heldur hvorki vindi né vatni. Árið 1805 er skólinn fluttur á Bessastaði, og aftur til Reykjavíkur, í Lækjargötuna, árið 1846, og er þar enn. Icelandic Times / Land & Saga fylgdust með þegar nemendur Schola Reykjavicensis, dimmiteruðu, síðasta vetrardag. Síðan taka próf og útskrift við… og framtíðin, sem er björt fyrir þessa nemendur sem eru allt í einu orðnir fullorðnir, eins og þessi meira en þúsund ára gamla menntastofnun.












Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 22/04/2026 : GFX100 II, GFX100 RF – GF 1.7/55mm, 4.0/35mm



