Nemendur MR dimmitera

Schola Reykjavicensis 


Menntaskólinn í Reykjavík, eða M.R. hefur verið staðsettur í Reykjavík frá árinu 1846, en á rætur sínar að rekja til ársins 1056, eða í eittþúsund og sjötíu ár. Það var Ísleifur Gissurarson, fyrsti biskupinn á Íslandi, sem stofnaði Skálholtsskóla, eftir að hannttekur biskupsvígslu og situr í Skálholti árið 1056. Þar er skólinn, æðsta menntastofnun landsins fram til 1785, en í móðuharðindunum, flyst skólinn og biskupssetrið frá Skálholti til Reykjavíkur, þar sem hann er i kofa við Hólavallagötu sem heldur hvorki vindi né vatni. Árið 1805 er skólinn fluttur á Bessastaði, og aftur til Reykjavíkur, í Lækjargötuna, árið 1846, og er þar enn. Icelandic Times / Land & Saga fylgdust með þegar nemendur Schola Reykjavicensis, dimmiteruðu, síðasta vetrardag. Síðan taka próf og útskrift við… og framtíðin, sem er björt fyrir þessa nemendur sem eru allt í einu orðnir fullorðnir, eins og þessi meira en þúsund ára gamla menntastofnun. 

Nemendur MR dimmitera
Nemendur MR dimmitera
Nemendur MR dimmitera
Nemendur MR dimmitera
Nemendur MR dimmitera
Nemendur MR dimmitera
Nemendur MR dimmitera
Nemendur MR dimmitera
Nemendur MR dimmitera
Nemendur MR dimmitera
Nemendur MR dimmitera

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 22/04/2026 : GFX100 II, GFX100 RF – GF 1.7/55mm, 4.0/35mm