Nýr Landspítali er að rísa við Hringbraut í Reykjavík, eitt stærsta, mikilvægasta og dýrasta verkefni Íslandssögunnar. Framkvæmdir hófust 2018, og munu (vonandi) ljúka 2028, þar sem landsmenn fá nútímalegt háskólasjúkrahús, fyrir komandi kynslóðir. Í dag vinna um 500 manns á byggingarsvæðinu að klára verkið. Landspítalinn tók til starfa árið 1930, þegar eitt af fallegri byggingum landsins, eftir Guðjón Samúelsson var tilbúið, en það var í byggingu frá 1926, til 1930, við Hringbraut. Nýi Landspítalinn er sunnar á sömu lóð, hannaður af mörgum arkitektastofum og verkfræðifyrirtækjum undir heitinu SPITAL. Icelandic Times Land & Saga, kíkti á hvernig gengur, en nýr Landspítali mun setja sterkan svip á miðborgina, og mun verða til heilla fyrir land og þjóð, sem er að fullorðnast.









Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 24/04/2026 : GFX100 RF – 4.0/35mm



