Borgarar í borgum


Af 400 þúsund íbúum Íslands, býr 263 þúsund manns á höfuðborgarsvæðinu eða 65% þjóðarinnar, þar af 147 þúsund í höfuðborginni Reykjavík. Í allri heimsálfunni Evrópu, er hvergi eins hátt hlutfall íbúa á höfuðborgarsvæði, eins og á Íslandi. Riga í Lettlandi kemur næst með 46%, Tallin höfuðborg Eistlands með 45% er í þriðja sæti og Dublin á Írlandi er í því fjórða, með 40% íbúa eyjunnar grænu. Í fimmta sæti er Kaupmannahöfn, en 35% íbúa konungsríkisins Danmerkur búa þar. Í fertugasta og síðasta sæti í þessari álfukeppni er Bern, höfuðborg Sviss, en þar búa 5% af íbúum Sviss, eða 400 þúsund einstaklingar, jafn margir og búa á öllu Íslandi. Berlín, höfuðborg Þýskalands er með 6% af íbúum sambandslýðveldisins, meðan Rómverjar eru 7% af íbúum Ítalíu, eða 4.3 milljónir. Hér koma nokkrar svipmyndir frá okkar fjölmennu höfuðborg. 

Kyrrlátt á Bergstaðastræti
 Horft vestur Geirsgötu

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 26/04/2026 : GFX100 RF – 4.0/35mm