Örfirisey (einnig þekkt sem Örfirsey og áður Örfærisey, Öffursey, Örfursey og Effirsey) er fyrrverandi örfirisey við Kollafjörð sem nú hefur verið tengd með landfyllingu við meginland Reykjavíkur. Áður fyrr var í Örfirisey aðsetur kaupmanna. Færeyska ættarnafnið Effersöe er dregið af nafni Örfiriseyjar. Norðvesturhorn eyjarinnar/nessins heitir Reykjanes.
Fyrr á tímum var ræktað korn og veiddur selur í Örfirisey. Í Oddgeirsmáldaga frá árinu 1379 er kveðið á um að Jónskirkja í Vík eigi landsælding (eitt sáld, þ.e. um 100 kg útsæðiskorns) og selalátur í Örfirisey.