Reykjavík nú og þá

Bókin “Reykjavík, nú og þá” er komin til landsins og erum við byrjuð að dreifa henni og koma á framfæri.
Frekari upplýsingar um bókina má sjá hér fyrir neðan:

Saga Reykjavíkur er heillandi líkt og fram kemur í þessum aldarspegli. Ævintýrið hófst í Kvosinni með landnámsbænum. Aðalstræti er fyrsta gata Reykjavíkur, upp af henni Grjótaþorpið og til vesturs auðvitað Vesturbærinn. Til austurs Hafnarstræti og Austurstræti með ys og læti, þá Lækjarstræti við lækinn sem ekki lengur sést, Bernhöftstorfan og Menntaskólinn. Tugthús varð stjórnarráð, hegningarhús með fanga á neðri hæð og Landsrétt á efri hæð reis á 19. öld þar sem bæjarstjórn fundaði í þrjá áratugi og svo kom sjálft Alþingishúsið og Þingholtin. Frelsisþrá þjóðarinnar fann sér útrás með sjávarútvegi landsmanna,
Reykjavíkurhöfn markaði þáttaskil. Bær varð borg. Víkurkirkja hafði risið í Kvosinni á þriðja áratug 17. aldar, þá Dómkirkjan, Basilika Krists á Landakoti snemma á 20. öld og Hallgrímskirkja sem var 40 ár í byggingu. Lindargata dregur nafn sitt af Móakotslind þar sem háir og lágir bjuggu í Skuggahverfi. Elliðaárvirkjun var tekin í notkun snemma á 20. öld, hitaveita í Austurbæjarskóla, hitaveitustokkur úr Mosfellssveit.
Útrásin var til austurs sem lesa má í þessari einstöku bók með um 550 myndum og ótal sögum.

Þú getur skoðað vel valið innihald úr bökinni með því að klikka á þennan tengil hér

Tilboðsverð með heimsendingu 5900kr.

[contact-form-7 id=”de193f3″ title=”Fá sent Reykjavík nú og þá”]