Áfram veginn

Icelandic Times / Land & Saga hefur undanfarna daga verið mikið á ferðinni. Greinar fá þeim ferðum koma næstu daga. Því það sem er svo heillandi við Ísland, hvort maður sé að ferðast í júní, janúar eða, eins og nú í lok október, er að landið, landslagið, kemur manni alltaf jafn mikið á óvart. Það eru óvænt augnablik sem mæta manni. Álft eða skilti sem maður hefur ekki séð áður. Veður og birta sem er engu lík. Hér koma nokkrar myndir, sem urðu til, komu til okkar á leiðinni, áfram veginn… vestur eða austur. 

Einmanna álft undir Hrafnskagafjalli
Sólarglenna, Hvammsfirði
Undir Bana í Dalasýslu
Súlueyri í Melasveit
Reykjavíkurtjörn
Horft inn í Þórsmörk
Hætta Grjóthrun á Eiðinu, Heimaey

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Ísland 20/10/2025 – A7C Rm RX1R II : FE 2.8/100mm GM,2.0/35mm Z