Hér kemur ein gömul og góð mynd af Akureyrarkirkju, en verið er nú að endurbyggja tröppurnar upp að kirkjunni sem var vígð árið 1940, og teiknuð af Guðjóni Samúelssyni

Akureyri ( myndasería I )

Akureyri er ekki bara höfuðstaður norðurlands, heldur allrar landsbyggðarinnar. Þarna við botn Eyjafjarðar býr nær þriðjungur landsmanna. Það er að segja þeir landsmenn sem búa utan suðvesturhornsins. Fyrsta húsið sem reist er á Akureyri er byggt árið 1778, og fær bærinn fyrst kaupstaðarréttindi 1786, á sama tíma og Reykjavík. Byggðin á Akureyri jókst hægt í byrjun, og missir því Akureyri kaupstaðarréttindin 1836, en nær þeim aftur 1862. Fljótlega eftir það stofna bændur í Eyjafirði, Kaupfélag Eyfirðinga, KEA sem verður eitt öflugasta kaupfélag landsins, Akureyri verður miðstöð iðnaðar á landinu um miðja síðustu öld. Síðan hefur margt breyst, nú er Akureyri menntabær, með Háskóla, tvo menntaskóla, síðan er útvegur, en næst stærsta útgerðarfélag landsins Samherji er með höfuðstöðvar á Akureyri. Ferðaþjónusta er einnig öflug á Akureyri, en í bænum er annar af tveimur alþjóðaflugvöllum landsins. Icelandic Times / Land & Saga fór norður, og myndaði vetrarfegurðina fyrir norðan. 

Hafnarstræti aðal verslunargata Akureyrar
Horft norður Eyjafjörð frá Akureyri, Kaldbakur til vinstri
Horft úr Hlíðarfjalli, niður í miðbæ Akureyrar, Vaðlaheiði í bakgrunni
Sundlaugin á Akureyri, ein af betri sundlaugum landsins
Gránufélagshúsin á Oddeyrinni, byggð 1873
Aðalstræti 46, reist árið 1856, kallað Friðbjarnarhús eftir samnefndum bóksala, syni Steins Kristjánssonar sem byggði húsið
ón Sveinsson, Nonni, rithöfundur fyrir framan Aðalstræti 54
Kaffi Ilmur við Hafnarstræti
Gránufélagshúsin á Oddeyrinni, byggð 1873
Akureyri 16/02/2024 – A7R IV, A7C, M6 : FE 1.2/50mm GM, FE 1.4/24mm, FE 1.8/135mm GM, 2.8/21mm
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson