Askja einstök nátturusmíð
Stórbrotið landslag blasir við fólki þegar það ferðast með fyrirtækinu Mývatntours að Öskju.
Ferðin í Öskju er 11-12 tíma löng þar sem ekið er um stærsta ósnorta landssvæði Íslands. Umhverfið er ferðamönnum mjög framandi og nýstárlegt, svartir jökulsandar, hvítar vikurauðnir og gróðurvinjar inn á milli. Ekið er um Mývatnsöræfi til Herðubreiðalinda og á leiðinni er gert stutt stopp við Gáska, lítinn fallegan foss í Grafarlandaá. Áð er í Herðubreiðarlindum og gengið að rústum kofa Fjalla-Eyvindar. Því næst er ekið sem leið liggur úr Lindum í Öskju. Á leiðinni er stansað við fossinn Gljúfrasmið, en þar grefur Jökulsá á Fjöllum sér tilkomumikil gljúfur í hraunbreiðuna. Einnig er stoppað á vikursöndunum sunnan Herðubreiðartagla þar sem geimfarar NASA æfðu sig fyrir tunglferðina 1969.
Heitt bað í Víti
Komið er að Vikraborgum í Öskju um hádegisbil og þaðan er um hálftíma löng en auðveld ganga inn að Öskjuvatni og Víti. Hægt er að fara í bað í Víti og er það mjög vinsælt hjá ferðamönnum, þess ber að geta að bratt er ofan í Víti og ekki hægt að fara niður ef bleyta er. Í Öskju er dvalið í um tvær klukkustundir og ferðamönnum gefinn tími til að virða fyrir sér þessa einstöku náttúrusmíð. Á heimleiðinni er stansað við Drekagil og þaðan ekið um Herðubreiðarlindir sömu leið til Mývatns.Öskjuvatn er dýpsta stöðuvatn landsins (220 metrar). Vatnsstæðið tók að myndast þegar landsvæði innan meginöskjunnar seig eftir að afar öflugu gjóskugosi lauk 1875. Öskjumyndunin og gjóskugosið eru hluti landreks- og eldgosahrinu sem nefnist Sveinagjáreldar og gekk yfir 1874- 1875. Smá saman flæddi grunnvatn í vatnsstæðið og Öskjuvatn varð til á nokkrum árum. Gígurinn Víti myndaðist strax á eftir megingjóskugosinu.
Þeir sem ferðast með Mývatntours til Öskju þurfa að vera vel skóaðir. Dagsferðin kostar 14.000 fyrir fullorðna en helmingi minna fyrir börn og frítt fyrir börn undir 6 ára aldri.
Allar nánari upplýsingar um þessar ferðir er að finna á vefsíðunni www.myvatntours.is
Mývatn Tours – 660 Mývatn – Iceland – Tel: +354 464 1920 – email: [email protected]