Breytingar á Laugavegi

Laugavegur, frá Bankastræti að Hlemmi, hefur verið í rúm hundrað ár ein helsta verslunargata Reykjavíkur. Laugarvegur er með eldri götum borgarinnar, en lagning Laugavegar hófst árið 1885, til að auðvelda fólki ferðir frá byggðinni í Reykjavík í Þvottalaugarnar í Laugardal. Einnig skyldi þjóðvegurinn út úr Reykjavík koma í framhaldi af Laugavegi, sem nær í dag að Kringlumýrarbraut, þar sem Suðurlandsbraut tekur við. 

Hlemmur var aðalskiptistöð Strætó frá því um miðjan sjöunda áratuginn, fram til vorsins 2024, þegar ákveðið var að stækka torgið í austur og norður, og leggja niður miðlæga stoppustöð fyrir Strætó í miðbænum. Reykjavíkurborg vinnur nú að krafti að breyta og bæta torgið, fyrir gangandi og hjólandi umferð. En það eru tvö önnur stór byggingarverkefni á ofanverðum Laugavegi, Heklureiturinn, á Laugavegi 168-174 er verið að byggja 400 íbúðir, rétt austan við miðborgina, Nú er verið að klára fyrsta áfanga, sem verður tilbúin í haust, með 82 íbúðum, frá stórum þakíbúðum, í littlar tveggja herbergja íbúðir. Við hlið Heklureitsins, þar sem sjónvarpshúsið var frá 1966, þegar sjónvarpið fór fyrst í loftið, til 1987 er nú verið að byggja 170 herbergja lúxushótel fyrir Hyatt Centric. Icelandic Times / Land & Saga fór auðvitað og kíkti á framkvæmdirnar. 

Hlemmur
Horft niður (vestur) Laugaveg frá Hlemmi, Klyfjahesturinn eftir Sigurjón Ólafsson í forgrunni
Framkvæmdir í austasta hluta Hlemms
Hyatt Centric, að taka á sig mynd
Það bætast 170 herbergi við Laugaveg, þegar Hyatt Centric, klárast
Heklureiturinn, horft austur Laugaveg
Fyrstu íbúðirnar að klárast á Heklureitnum

Horft frá Heklureit að Esjunni
Bakhlið Hyatt Centric, séð frá Skipholti

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Reykjavík 07/08/2025 – RX1R II : 2.0/35mm Z