Veðrið í sumar hefur verið rysjótt. Þegar sterkur regnbogi birtist allt í einu í Víðidal, norður í Vestur-Húnavatnssýslu var bara að grípa gæsina, stöðva bifreiðina, grípa fyrstu myndavélina sem kom upp úr myndavélatöskunni. Sem betur fer var hundrað millimetra linsa á vélinni, mitt uppáhald. Það hefði ekki verið neinn tími að skipta um linsu, því eftir örfáar ramma, var regnboginn horfinn. Síðan er bara að velja; hvaða augnablik er best?



Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Vestur-Húnavatnssýsla 02/08/2025 – A7C R : FE 2.8/100mm GM



