Það var hvasst í höfuðborginni í dag, þegar myndirnar voru teknar í dag milli 15 og 16 var meðalvindur í höfuðborginni 56 km / 35 mi, og vindhviður í allt að 95 km / 59 mi samkvæmt Veðurstofu Íslands. Stætó hefur fellt niður margar ferðir út á land í dag, meðal annars allar ferðir til Akureyrar, og til Keflavíkurflugvallar. Hvassast á landinu í dag hefur verið undir Hafnafjalli, rétt sunnan við Borgarnes, í Blönduhlíð, sunnan Varmahlíðar í Skagafirði og auðvitað á veðurstöðinni á Hvammi undir Eyjafjöllum, milli Hvolsvallar og Víkur í Mýrdal. Hvammur er hvassasti staður landsins, yfir árið.
Reykjavík / Seltjarnarnes 13/11/2021 15:14 & 15:59 – A7R IV : FE 1.8/135mm GM
Ljósmyndir og texti : Páll Stefánsson