Fasteignakaupum á Spáni

Ánægðir viðskiptavinir er besta auglýsingin.

Sólbrún og skemmtileg hjón, þau Kristján og Birna bönkuðu upp á skrifstofu Icelandic Times svo að segja með sólina beint frá Spáni, þar sem þau starfa og eru með annan fótinn. Þau hjónin hófu störf sem sölufulltrúar hjá Euromarina fyrir um tveimur árum síðan, einu þekktasta byggingarfyrirtæki Spánar og sinna Íslenskum markaði þá. Þau halda reglulegar kynningar hér á landi og hafa aðstöðu í Hlíðasmára 19. Það var því ekki úr vegi að fræðast meir um starfsemi Euromarina á Íslandi, báðum við því hjónakornin að koma á fund okkar og segja okkur aðeins frá starfseminni, hvernig málum er háttað og hvernig landið liggur á Spáni.
,,Það er heilmikið að gerast á Spáni og miklir möguleikar. Á skrifstofu okkar getum við sýnt eignir og kynnt fyrir fólki ferlið í fasteignakaupum á Spáni. Mikilvægustu gildi Euromarina er að viðskiptavinir séu ánægðir og því er gaman að segja frá því að vaxandi fjöldi íslenskra kaupenda eru engin undantekning hvað þetta varðar. Viðskiptavinir okkar eru þverskurður Íslendinga á öllum aldri og úr öllum stéttum. Við höfum aðstoðað fjölda ánægðra Íslendinga við að eignast sína draumaeign t.d á Costa Blanca (hvítu ströndinni), sem er á suðaustur strönd Spánar sem er 25 mínútna keyrsla frá Alicante, en þangað er flogið beint frá Íslandi allt árið,“ segja þau Kristján og Birna.



Hvers vegna sækja Íslendingar sérstaklega á þetta svæði?
Það eru margar góðar ástæður fyrir því, fyrir utan hagstætt verðlag og frábært veður, þá eru góðir skólar og heilbrigðiskerfi ákaflega gott á svæðinu. Þarna er einfladlega öll þjónusta til fyrirmyndar, lifandi verslunarlíf og veitingahúsamenningin er fjölbreytt. Svæðið í kringum Torrevieja er Íslendingum einnig flestum kunnugt, gerir miðjarðarhafs loftslags svæðið það einstaklega veðursælt með að meðaltali 320 sólríka daga á ári. Flestir sem koma til okkar eru að leita að öruggu svæði með heilsársbúsetu og lífi allt árið um kring.
Hvað er Euromarina?
Euromarina er stórt og vaxandi 46 ára gamalt byggingarfyrirtæki sem byggir og selur margbreytilegar eignir í samræmi við ítrustu kröfur markaðsins.
Euromarina býr við traustan eigin fjárhag og hefur staðið af sér sveiflur og kreppur án vandræða.
Margbreytileikinn er eitt af einkennum fyrirtækisins, arkitektar Euromarina aðstoðar viðskiptavini við að skipuleggja og hanna fasteignina og getum við boðið upp á fjölbreytt úrval þjónustu hvort heldur það er fjölbýli með útsýni til sjávar við ströndina, nútímalegar íbúðir í þéttbýlishverfi eða fallega hannað einbýlishús á stórri jörð.

Hvers vegna ætti maður frekar að kaupa af ykkur en öðrum fasteignasölum á Spáni?

Stærsti munurinn við að kaupa hjá okkur er að þá er fólk að eiga viðskipti milliliðalaust við eitt virtasta og stærsta byggingarfélagið á Costa Blanca-svæðinu, sem veitir þér persónulega og góða þjónustu og okkur þér til aðstoðar innan Euromarina. Við aðstoðum hugsanlega viðskiptavini og fylgjum eftir öllu ferlinu. Euromarina hefur selt Íslendingum eignir á Spáni í 20 ár með góðu orðspori.
Euromarina er einnig með allt á sínum snærum, t.d erum við með eigin húsgagnaverslum, Euromarina Home, og bjóðum við upp á alla aðstoð við að innrétta og fullbúa eignina með nettengingu, uppsetningu sjónvarps og svo mætti lengi telja.
Við leggjum öll gögn fram þannig að viðskiptavinurinn veit nákvæmlega hver kostnaðurinn við kaupin eru frá upphafi, engin óvæntur kostnaður eða gjöld. Einnig sýnum við fram á hver útgjöldin verða árlega eftir kaupin.
Nokkur atriði úr byggingastefnu Euromarina.


1. Euromarina notar endurnýtanlega orku og eru úrræðagóð þegar kemur að orkunotkun og skilvirkni, það skilar sér í u.þ.b. 30% orkusparnaði hjá þér.
2. Byggingar okkar eru með 10 ára ábyrgð.
3. Engin þörf á endurbótum, enginn viðhaldskostnaður, þar sem við seljum einungis nýbyggingar.
4. Efnin sem við notum eru af bestu gæðum, endingargóð og umhverfisvæn.
5. Byggingar okkar eru sér styrktar,burðarvirkið er steypt og kambstál notað rétt eins og við þekkjum hér á Íslandi.
6. Húsin eru einangruð fyrir varma og hljóði með um 7 cm þykkri plast einangrun.
7. Við erum framsækin og innleiðum ávallt nýustu tækni í byggingum okkar, sé hún til bóta.
8. Euromarina ábyrgist alla smærri innréttingar s.s gólfefni og svo framvegis í þrjú ár.
9. Euromarina byggir eingöngu á eigin afli, það þýðir að eignin hefur alltaf verið veðbandalaus þegar hún kemst í þínar hendur.
10. Euromarina selur eingöngu nýjar eignir með ábyrgð.

Allt þetta skiptir miklu máli og hefur sett Euromarina í fremstu röð byggingaraðila á Spáni.
En hvað með framtíðina á Spáni, hefur fasteignaverð ekki farið hækkandi?

Vissulega, Spánn hefur ekki farið varhluta af þeim uppgangi sem hefur átt sér stað síðasta ár, en fasteignaverð hafði nánast staðið í stað frá því árið 2009 og því talsverð uppsöfnuð hækkun inni og því er gott fyrir Íslendinga að kaupa þar núna en til dæmis mældist hækkun á fasteignaverði árið 2017 yfir 6% og spáir áframhaldandi hækkunum.

Aðstoðið þið fólk sem er að hugleiða kaup?
„Já og meira en það“ segir
Birna. Við aðstoðum fólk í öllu ferlinu og ekki síður þegar það er búið að kaupa. Við aðstoðum einnig við útleigu á húsnæði sem fólk kaupir hjá okkur og umsjón í kringum það.

Og hvernig er svo ferlið ef fólk hefur áhuga á að koma til Spánar í skoðunarferð?
Við tökum á móti fólki á Alicante flugvellinum og keyrum það á Hótel þar sem það gistir í okkar boði þrjár til fimm nætur.
Við förum saman í höfuðstöðvar Euromarina og gaumgæfum hvað er í boði og hvað fólk leitar að. Við skoðum eignir og mismunandi hverfum. Ef fólk finnur draumaeignina, aðstoðum við þau að opna bankareikning, sækja um N.I.E númer (spænska kennitölu) og fylgjum í gegnum ferlið alla leið.

Að lokum, hvernig getur fólk nálgast ykkur?
Það er alltaf hægt að ná í okkur í síma eða panta tíma með okkur á skrifstofu okkar í Hlíðasmára 19 Kópavogi, einnig erum við reglulega með kynningar á Íslandi þar sem við sýnum allt það nýjasta sem við höfum uppá að bjóða ásamt því að lögfræðingur frá hinni virtu lögfræðistofu Pellicer & Herrada skýrir allar lagalegar hliðar fasteignakaupa á Spáni.
Kristján réttir mér nafnspjaldið kristjan@ euromarina.es
Ísland +354 – 690 2665

Umsögn

Reynsla okkar hjóna af Euromarina og starfólki þess hefur verið einstaklega ánæjuleg.

Upphaflega þegar við fórum af stað í þessa vegferð að kaupa eign á Spáni var Euromarina ekkert sérstaklega ofarlega á lista hjá okkur.

Okkur bauðst þó með skömmum fyrrvara að fara í skoðunarferð með þeim í lok janúar, sem við og þáðum.
Þar má koma fram að við skoðuðum fleiri eignir með öðrum fasteignasölum í þeirri sömu ferð.

Okkar upphaflegu hugmyndir voru að kaupa eignir sunnar og nær ströndinni en eftir að hafa skoðað eignir og umhverfi Euromarina var í raun allur samanburður orðin erfiður og þá Euromarina í hag.

Allir starsmenn Euromarina hafa verið einstaklega hjálplegir og Kristján og Birna hugsað einstaklega vel um okkur og nánast tekið okkur í fóstur. Allt hefur staðist eins og stafur á bók og öll uppýsingaveita til fyrirmyndar…

Bestu kveðjur.
Guðm. Ragnarsson
Elsa M Jónsdóttir