Ferðamenn á Fjallabaki
Það eru fáir vegir sem eru eins litríkir vondir rykugir holóttir og gefandi eins og Fjallabaksleið nyrðri, þjóðleið sem er aðeins fær fjórhjóladrifnum bifreiðum og þolinmóðum ökumönnum.

Á leið að Loðmundarvatni, fjallið Sáta framundan

Gígurinn Strútur, steinsnar frá Landmannalaugum

Göngufólk á Dómadalshálsi á leið að Landmannahelli

Sauðkindur í ferðalagi í Kringlunni að Fjallabaki

Göngugarpar á toppnum á Jarðfalli við Frostastaðavatn

Er ekki viss hvort hann sneri myndavélinni rétt, ljósmyndarinn undir Kirkjufelli að Fjallabaki
Rangárvallasýsla 03/09/2022 :A7RIV, A7C, RX1R II – FE 1.2/50mm GM, FE 1.8/20mm G, FE 1.8/135 GM, 2.0/35mm Z
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson