Á leið á Norðurpólinn, eða bara til Grænlands frá Reykjavíkurflugvelli?

Fimmtíu og fimm sinnum stærra

Eitt stærsta flugstjórnarsvæði í heimi er íslenska flugstjórnarsvæðið sem kallast ,,Reykjavík Control Area” og er fimmtíu fimm sinnum stærra en Ísland, eða fimm og hálf milljón ferkílómetrar að stærð. Nær það frá Norðurpólnum í norðri að miðlínu milli Færeyja og Skotlands í suðri. Vesturmörk flugstjórnarsvæðisins er miðlína milli Grænlands og Kanada, austurmörk þess er  Greenwich-lengdarbaugurinn, 0° (núll baugurinn). Að meðaltali fara um 400 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið á sólarhring, eða rúmlega fjórðungur af allri flugumferð yfir Atlantshafið. Það er Isavia ANS, dótturfélag Isavia sem sinnir flugleiðsöguþjónustu í innanlands- og alþjóðaflugi á íslenska flugstjórnarsvæðinu. Helstu flugvellir á svæðinu eru Keflavík, Reykjavík og Akureyri hér heima, Vågar í Færeyjum, og Nuuk, Thule, Kangerlussuaq á Grænlandi, en þar er Isavia með dótturfélag, Suluk APS.

Höfuðstöðvar Isavia við Reykjavíkurflugvöll, þar sem allri flugumferð er stjórnað frá Skotlandi, og alla leið norður á Norðurpólinn
Þegar maður er að mynda út í náttúrunni, eins og hér í tunglsljósi við hæsta fjall landsins, Öræfajökull, má sjá flugvél á ferð, eins og hér, ljós frá flugvél hægra megin yfir fjallinu
Reykjavík 21/01/2024 – A7R IV : 1.8/20mm G, FE 1.8/135mm GM
 
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson