Það eru fjöll sem bera af, eins og Herðubreið, sem hefur verið kosið fallegasta fjall Íslands, margoft. Enda einstakt í auðninni norðan Vatnajökuls, sunnan Mývatns. Síðan eru fjöll, eins og Esjan sem skýlir höfuðborginni fyrir norðangarranum, hún er heldur betur fjall Reykvíkinga, oftast í augsýn, og vinsæl til gönguferða. Sérhverhver Íslendingur á sitt uppáhalds fjall, fjallið sem það sér daglega, fjallið sem hann/hún sigraði fyrst. Hér tökum við saman sjö fjöll, sem bera af. Þegar maður tekur saman svona lista til gamans, geta ekki öll fjöll verið með, hér er ekki Snæfellsjökull, Hekla, okkar frægasta eldfjall, en aftur á móti er hér mynd af Sveinstind við Langasjó. Ekki bara formfagurt fjall, þar uppi er líklega fallegasta útsýni af tindi í öllu lýðveldinu… og ekki langt frá er Lómagnúpur, með sína formfögru kletta, einstök landamæri landshluta, en hér mætast suður og austurland. Tindfjallajökull, sem skín svo skært þegar ferðast er að Fjallabaki. Eyjafjöllin, Eyjafjallajökull, eru sterkt kennileiti eftir Rangárvellina, eða úr Vestmannaeyjum. Síðan auðvitað Öræfajökull, hæsta og stærsta fjall landsins. Þar uppi, þegar litið er til vesturs, horfir maður niður á Lómagnúp.






Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 30/10/2025 – A7R IV, RX1R II, 503CW : FE 1.8/135mm GM, FE 1.2/50mm, FE 1.4/85mm GM, 2.0/35mm Z, 4.0/120mm Z



