Ritstjóri Icelandic Times / Land & Saga, Einar Þorsteinn Þorsteinsson spurði mig, hvort ég hefði komið í undirgöngin við Miklubraut / Lönguhlíð. Svarið var nei… svo auðvitað fór ég og skoðaði þau, og síðan húsið, lóðina á Grettigötu 87, við Hlemm, í miðbæ Reykjavíkur. Þar standa enn útveggir af bifreiðaverkstæði sem brann árið 2016, vel skreyttir af veggjakroti, sem er ansi snoturt, fallegt. Hér kemur myndasería frá þessum tveimur stöðum, og þeirri list sem þar má sjá.
















Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík 01/10/2025 – A7C R : FE 1.8/14mm GM



