Grindavík (Myndasería I)

Síðan 19. mars 2021 þegar eldgos hófst við Fagradalsfjall hafa orðið tólf eldgos við Grindavík. Þrjú þau fyrstu við Fagradalsfjall, og síðan níu eldgos á Sandhnjúksgígaröðinni, það fyrsta í desember 2023, og það síðasta í júlí 2025. Þegar eldgosahrinan byrjar, bjuggu um fjögur þúsund manns, eitt prósent þjóðarinnar, í þessum blómlega bæ á sunnanverðu Reykjanesi. Í dag eru 880 með lögheimili í bænum, merkilega margir, því bærinn var tæmdur, bannað að búa í bænum, eftir að eldgosin fluttust yfir í Sandhnjúksgígaröðina, rétt norðan við Grindavík. En það er komið líf við höfnina, fyrirtæki eru byrjað að vinna fisk, skip koma og landa í bænum. Icelandic Times / Land & Saga lagði leið sína til Grindavíkur, til að sjá þennan tóma, nú hálftóma bæ vakna til lífsins.

Á Reykjanesi, á suðurleiðinni til Grindavíkur
Hort á Þórkötlustaðarhverfið í Grindavík frá Suðurstrandarvegi
Pása við höfnina
Landað í Grindavíkurhöfn
Frá Grindavík, vestan við höfnina
Við Ránargötu, í norðurbæ Grindavíkur
Flóttaleið úr bænum
Lokuð gata
Jarðaför í Grindarvíkukirkju
Tómt fjölbýli við varnargarð

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Grindavík 01/09/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z