Fyrir tæpum fjórum árum bjuggu 4.000 manns í Grindavík, fyrir tveimur árum voru 0 íbúar í bænum, allir fluttir í burtu vegna eldgosahrinunnar á Sandhnjúksgígaröðinni. Í dag er íbúatalan 880 manns. Það er bjartsýni í bæjarfélaginu að Grindavík byggist upp aftur; enda er höfnin, lífæð bæjarins og næsta nágrenni, nánast óskemmt eftir hamfarir síðustu mánaða. Á heimasíðu bæjarins, grindavik.is, finnur maður bæði fréttir og upplýsingar um það sem er að gerast í sveitarfélaginu, og langt fyrir utan það. Meðal annars að það eru til þrjár Grindavíkur, auðvitað bærinn sjálfur, suður með sjó, líka smástirni Grindavík, milli Júpíters og Mars, sem hét bara 24090 / 1999 UY8 þangað til um daginn. Á plánetunni Mars er síðan 12 km breiður gígur sem ber nafn bæjarins.
Hér kemur seinni hlutinn af myndaseríu sem var tekin… ekki á Mars, heldur á Reykjanesinu.










Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Grindavík 02/09/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z



