Listasafn Íslands
30.10.2015 12:10 – 12:40
Íslenski flautukórinn og Listasafn Íslands standa fyrir hádegistónleikaröð í Listasafni Íslands. Síðasta föstudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölbreytta tónlist til þess að vinda ofan af vinnuvikunni og endurræsa skilningarvitin. Að tónleikunum loknum býður Kaffistofa listasafnsins upp á hádegisverðartilboð.
Aðgangur er ókeypis.
Flytjendur:
Pamela De Sensi – flauta
Júlíana Rún Indriðadóttir
Efnisskrá:
Ziegler/Ortiz (1965-/1510) – Recercada Primera fyrir kontrabassaflautu og lupp
Elín Gunnlaugsdóttir (1965-) – Album fyrir altflautu og lupp
Paul Hindemith (1895) – Sonata fyrir flautu og píanó
-I. Helter bewegt
-II. Sehr langsam
-III. Sehr lebhaft – Marsch
Það er tími til að hægja á slættinum í deginum og gefa sér næði til að njóta gersema og gloría.
Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík | Sími 515-9600
Samfélagsmiðlar