Vetrarvindur í Reynisfjöru

Hálft ár af vetri

Í gamla íslenska (norræna) tímatalinu, er hvorki vor eða haust, bara sumar og vetur. Þrátt fyrir breytta tíma, höldum við fyrsta vetrardag, og sumardaginn fyrsta hátíðlega. Meira að segja er sumardagurinn fyrsti, lögbundinn frídagur á Íslandi, en hann ber alltaf upp á fimmtudegi, á tímabilinu frá 19. til 25. apríl. Sex mánuðum síðar er fyrsti vetrardagur, ber upp á laugardegi, að lokinni 26. viku sumars, á tímabilinu 21. til 27. október. Í ár má segja að veturinn hafi komið til Reykjavíkur á fyrsta degi vetrar. Sem reyndar er ekki tilviljun, því 26. október, er sá dagur sem meðaltalið segir að fyrsta snjóinn festi í höfuðborginni. Veturinn er ekki bara langur á Íslandi, hann er líka dimmur, og kaldur. Samkvæmt gögnum, Climatic Research Unit (CRU), í Stóra Bretlandi, er Ísland fimmta kaldasta land veraldar, með ársmeðalhita upp á 1.85°C. Grænland er kaldast með -18.68°C meðalhita, Kanada er næst kaldast með -4.03°C, og Rússland er í brons sætinu með -3.79°C. Mongóla er sæti fyrir ofan Ísland, í því fjórða, meðalhitinn þar er í plús, eða 1.07°C gráður. Noregur og Finnland koma næst, með 2.21°C og 2.46°C gráður. Þrjú hlýjustu lönd veraldar eru öll í Vestur-Afríku, Burkina Faso, er með hæstan ársmeðalhita alla landa, og það eina sem fer yfir þrjátíu gráðurnar, með 30.39°C, í öðru sæti er Malí með 29.21°C, og í þriðja sæti er Senegal með 28.91°C. Meðalhitinn er reiknaður frá aldamótum, síðustu 25 ár.

Fótbolti í Burkina Faso, heitasta ríki veraldar
Listasafn Einars Jónssonar, Reykjavík
Snjókoma á Sæbraut í Reykjavík

Snjóruðningur á Neskaupsstað
Grýlukerti við Skógafoss
Síldarnót austur í Norðfirði
Vetrarvindur í Reynisfjöru

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Ísland, Burkina Faso :  27/10/2025 – A7R IV, RX1R II, CW503 : FE 1.2/50mm GM, FE 1.4/85mm GM, 2.0/35mm Z, 4.0/180mm Z