Horft yfir Eyjafjörð, að miðbæ Akareyrar, Hlíðarfjall í bakgrunni, þar er eitt stærsta skíðasvæði landsins

Halló Akureyri


Akureyri er fallegur tuttugu þúsund manna bær í botni Eyjafjarðar, fyrir miðju Norðurlandi. Við Eyjafjörð, búa um þrjátíu þúsund manns, sem gerir héraðið það lang fjölmennasta á Íslandi, fyrir utan höfuðborgarsvæðið á suðvesturhorninu. Akureyri er þjónustubær fyrir landsbyggðina, menntabær, en þarna eru þrjár menntastofnanir, Menntaskólinn á Akureyri, Verkmenntaskólinn, og Háskólinn á Akureyri. Stærsta súkrahúsið eftir Landspítalanum í Reykjavík, og mikil og öflug útgerð, og menningarstarfsemi. Akureyrarflugvöllur, er eini flugvöllur landsins, fyrir utan Keflavíkurflugvöll, með beinu áætlunarflugi til útlanda. Akureyri fær kaupstaðarréttindi árið 1862, og er lengi, fram til 1970, næst stærsti bær landsins, þegar Kópavogur verður stærri. Í dag er Akureyri fimmti stærsti bær landsins, og sá nyrsti, því eyjarnar Hrísey, og Grímsey, sem er nyrsta byggð landsins, tilheyra Akureyri. Ferðaþjónusta er og hefur verið öflug á Akureyri, enda er bærinn ákjósanlegur til að skoða allar perlur norðurlands, frá Hrútafirði í vestri og norður og austur á Melrakkasléttu. Icelandic Times / Land & Saga átti leið um þennan fallega bæ, sem þið ættuð auðvitað að heimsækja… sem fyrst. 

Akureyri er mikill útgerðarbær, Samherji, eitt stærsta útgerðarfélag landsins er með höfuðstöðvar á Akureyri
Gránufélagshúsið, eitt af fallegustu og elstu húsum Akureyrar, byggt árið 1880
Jón Sveinsson (1857 – 1944)  rithöfundur. Hann skrifaði barna og unglingabækurnar um Nonna & Manna, og var mjög vinsæll um alla Evrópu á fyrri hluta síðustu aldar. Styttan er við safn um hann, Nonnahús á Akureyri
Rétt sunnan við Akureyri er Jólagarðurinn, sem hefur verið starfræktur í þrjátíu ár, og opinn allt árið. Það er mest að gera í júlí, þá eru flestir ferðamenn á svæðinu
Kennileiti Akureyrar, Akureyrarkirkja eftir Guðjón Samúelsson, sem gerði meðal annars Hallgrímskirkju í Reykjavík. Kirkjan var vígð árið 1940
Sundlaugin á Akureyri, ein mest sótta sundlaug landsins, enda frábær
Hálönd, efsta byggðin á Akureyri, horft norðaustur yfir Eyjafjörð, Kaldbakur í bakgrunni
Horft yfir Eyjafjörð, að miðbæ Akareyrar, Hlíðarfjall í bakgrunni, þar er eitt stærsta skíðasvæði landsins

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Akureyri : 08/02/2026 – GFX 100 RF, GFX 100 II – 4.0/35mm, 1.7/55mm