Eru bara tvær árstíðir á Íslandi? Sú bjarta og sú dimma, sem er nú að byrja, eftir jafndægur að hausti. Það er nefnilega sáralítill munur á hitastigi, hvort sem það er sumar eða vetur á Íslandi. En með og í birtunni, dafna jurtir, lygilega vel, Ísland er vel grænt. Þegar haustar, breytist allt, náttúran býr til litaspjaldi til að gleðja okkur fyrir skammdegið, litleysið sem tekur við, langt fram í maí, byrjun júní. Njótið haustsins.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Ísland 24/09/2025 – A7C R. A7R IV, RX1R II : FE 1.8/135mm GM, FE 2.8/90mm, 2.0/35mm Z
60 1
70 1



