Heimsókn til æðarbænda

 

Heimsókn til æðarbænda


Við bjóðum upp á heimsókn á sveitabæ sem tekur u.þ.b. 3 klst. Gestir kynnast heimkynnum og varplandi æðarfuglsins og hvernig æðardúnn er hreinsaður. Gestum gefst kostur á að skoða æðardún á mismunandi vinnslustigum þar til hann er settur í sængur og kodda. Ferðir tvisvar i viku a tímabilinu 25. maí til 3. júlí. Nauðsynlegt er að panta með fyrirvara.

Við förum í létta gönguferð um heimkynni og varpland æðarfuglsins undir leiðsögn æðarbænda á Ytra-Nýpi. Gestum gefst kostur á að skoða hvernig þessi villti fugl er verndaður og búið í haginn fyrir hann þannig að honum líði sem best. Einnig má sjá fleiri fugla í varplandinu. Mikilvægt er að fara varlega og fylgja fyrirmælum í einu og öllu.

Farið er í dúnhreinsistöð bændanna þar sem gefst færi á að skoða og snerta æðardún á mismunandi vinnslustigum og skoða sýnishorn af fullunni vöru.

Gestum er boðið í „gestastofu dúnbóndans“ í áfastri skemmu þar sem boðið er upp á hressingu. Í gestastofunni eru munir sem tengjast búrekstri bænda síðustu ára.
Heildartími áætlaður 3 klst.

Opið 25. maí-3. júlí.
(Önnur opnun samkv. samkomulagi)
Íslenska/enska
www.eiderdowncomforters.com

https://www.facebook.com/eiderdowncomforters/

Pantanir; [email protected]      Tel. +354  893 1437
Verð 2.500 kr. per mann.
Ekki er tekið við kortum.