Hernámsganga

Borgarsögusafn Reykjavíkur
Sigurlaugur Ingólfsson, sagnfræðingur +354  4116305/8692579

Hernámsganga á fimmtudagskvöld
Hernámið er viðfangsefni kvöldgöngunnar þann 20. júlí næstkomandi. Sigurlaugur Ingólfsson, sagnfræðingur hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur leiðir gönguna um Kvosina og rifjar upp hinn afdrifaríka dag, 10. maí 1940, þegar breskir landgönguliðar gengu á land í Reykjavík. Íslendingar áttu sér þá von um að sogast ekki inn í ófriðarbálið sem geisaði í Evrópu en hjá því var ekki komist. Þennan sama dag hófu Þjóðverjar leiftursókn sína inn í Niðurlönd og Frakkland og Bretar áttu í vök að verjast í Norður-Atlantshafi. Bretar stóðu höllum fæti í Noregi og höfðu hernumið Færeyjar stuttu áður. Hernám Íslands var liður í áætlun Breta um að hefta aðgang Þjóðverja að Norður-Atlantshafi. Í göngunni verður fetað í fótspor bresku hermannanna sem hér stigu á land, og rifjaðar upp sögur af þessum örlagaríka degi.
Lagt verður af stað úr Grófinni milli Tryggvagötu 15 og 17 kl. 20.00. Gangan tekur um það bil eina og hálfa klukkustund og hentar öllum. Leiðsögnin fer fram á íslensku. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0