Sirkús í bænum!

Hvað? Sirkús í bænum!
Hvar? Árbæjarsafni
Hvenær? Sunnudaginn 5. júní kl 13-16


Sirkús í bænum!
Þorpsbúar á Árbæjarsafni býður í eftirvæntingu eftir sirkús sem á leið sína um bæinn og með honum fylgja kyndugir kvistir með magnaða hæfileika. Hægt verður að berja augum loftfimleikafólk, lygilega góðan galdramann, skeggjuðu konuna, ósýnilega manninn í Suðurgötu og fleiri skrautlegar persónur. Hjá sterkasta manni heims má spreyta sig á kraftlyftingum.
Á þorpstorginu verður í boði að fara í lestaferð í nýju krakkalest safnsins, kaupa sælgæti af sirkúsdömu og grilla sykurpúða yfir glóðum. Einnig verða skemmtileg útileikföng og leikir fyrir krakka.
Við minnum á hina sívinsælu leikfangasýningu í Landakoti þar sem má snerta og leika með leikföngin sem þar eru til sýnis. Kindur eru í haga og landnámshænurnar vappa frjálsar um safnið. Heitt á könnunni í Dillonshúsi og heimilislegar veitingar.
Aðgangur á safnið kostar 1740 kr en ókeypis er fyrir börn, öryrkja og
menningarkortshafa.
Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni, eitt safn á fimm frábærum stöðum.


Dagskrá
13-13.40 Akróbatískt dúo á ferli um safnið
13.40 Loftfimleikaatriði sirkús tvíeykisins Tom & Bryndís
14-14.40 Akróbatískt dúo á ferli um safnið
14.40 Loftfimleikatriði sirkús tvíeykisins Tom & Bryndís
14-16 Einar Aron töframaður á vappi um safnið sýnir lygilega góð trikk og spjallar við fólk
13-15 Sterkasti maður í heimi og aflraunir fyrir krakka
13-16 Ratleikur – súkkulaðiverðlaun frá Nóa Síríus í verðlaun!
13-15 Krakkalestin
13-16 Útileikföng
Ósýnilegi maðurinn í Suðurgötu, tattoo konan, skeggjaða konan og fleira undarlegt sirkúsfólk á ferli
um safnið. Grillaðir sykurpúðar, útileikir, sælgæti til sölu, handverkfólk í húsunum og lummur í
Árbænum.