Spá Ferðamálastofu er að tæplega 2.4 milljónir ferðamanna sæki Ísland heim í ár. Það er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Ferðamennirnir stoppa örlítið skemur, en eyða meira, svo ferðaþjónustan skapar svipaðar tekjur, og á síðasta ári. Ísland og Bahamaeyjar, bæði eyríki í Atlantshafi með svipaðan íbúafjölda, rétt um 400 hundruð þúsund manns. Til Bahamaeyja komu á síðasta ári, 11.2 milljónir ferðamanna, meirihluti kom með skemmtiferðaskipum, og stoppaði stutt. Til Kanaríeyja, þar sem 2.2 milljónir búa, komu á síðasta ári 17.8 milljónir ferðamanna, akkúrat átta sinnum íbúafjöldi landsins. Ferðamenn til Íslands er sex sinnum íbúafjöldi landsins, meðan ferðamenn til Bahamaeyja eru 28 sinnum íbúafjöldi eyjanna. Til Amsterdam komu á síðasta ári, 8.8 milljónir, íbúafjöldinn er 900 þúsund, það er rétt um tíu sinnum íbúafjöldin sem sækir borgina heim. Barcelona fær helmingi fleiri, eða tuttugu faldan íbúafjöldann, en 32 milljónir heimsóttu Barcelona á síðasta ári, en íbúar borgarinnar eru 1.6 milljónir. Svo Ísland, miðað við aðra fjölsótta ferðamannastaði, hefur tækifæri til að fjölga hóflega ferðamönnum, ef rétt er haldið á spilunum.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Ísland 30/06/2025 – RX1R II, A7C R : 2.0/35mm Z, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM



