Höfuðborg norðursins

Akureyri er ekki bara stærsti bær landsins, fyrir utan suðvesturhornið, heldur líka einstaklega vel staðsettur í botni Eyjafjarðar á miðju Norðurlandi. Á Eyjafjarðarsvæðinu búa rétt rúmlega þrjátíu þúsund manns, tveir þriðju á Akureyri. Bærinn er bæði menningar, mennta og þjónustubær, ekki bara fyrir næsta nágrenni, heldur fyrir þriðjung landsins, frá Skagafirði og austur á firði. Akureyri er ungur bær, árið 1778 var fyrsta íbúðarhúsið reist á staðnum, Akureyri fékk kaupstaðaréttindi 1836, þegar Friðrik VI Danakonungur gaf bænum

 réttindin til að efla þéttbýlismyndun sem var nær engin á Íslandi á þeim tíma. Bærinn tók þó ekki vaxa að ráði fyrr en í byrjun síðustu aldar, og hefur vaxið og dafnað vel síðan, orðinn bæði háskólabær, og stór útgerðarbær, með höfuðstöðvar Samherja næst stærsta útgerðarfélag landsins í bænum. Akureyri er einstaklega vel staðsettur bær; það er bæði stutt austur til Mývatns eða á Grjótnes á Melrakkasléttu, eða norður til Grenivíkur og Siglufjarðar, eða nær í Fnjóskadal og Hörgárdal, á leiðinni austur, suður, norður eða vestur. 

Akureyri, horft yfir Eyjafjörð, Hlíðarfjall í bakgrunni, skemmtiferðaskip í forgrunni
Systurnar eftir Ásmund Sveinsson við Andapollinn á Akureyri
Miðbærinn á Akureyri
Golfvöllurinn í Lundi, rétt austan við Akureyri3978 Akureyrarkirkja og skemmtiferðaskip
Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal, þau styttu leiðina til Akureyrar um 15 km / 9.5 mi að austan, frá Húsavík/Mývatni
Þjóðvegur 1, Hörgárdal, rétt vestan við Akureyri, leiðin suður til Reykjavíkur

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Ísland 03/08/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, FE 2.5/40mm G, 2.0/35mm Z