Sumarsýningin hjá Nýlistasafninu / The Living Art Museum, í Marshallhúsinu í Örfirisey, er Sending Frá Svalbarðseyri, í samvinnu við Safnasafnið / The Icelandic Folk and Outsider Art Museum, á Svalbarðseyri. Þarna sýna 28 listamenn, verk sín, elstur er Eyfirðingurinn Steinþór Leóson (1888-1967) , yngstur er Mattías Mar Einarsson (1995) sem býr og starfar nú í Kaupmannahöfn. Safnasafnið sem var stofnað árið 2007 í núverandi mynd, telur safnkostur þess nú um 120.000 verk eftir 323 listamenn. Sýningarstjórar sýningarinnar eru Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Joe Keys, Odda Júlía Snorradóttir og Unnar Örn. Sýningin Sending Frá Svalbarðseyri, sprettur úr samstarfi safnanna tveggja, sem eiga sér nátengda sögu, en Níels Hafstein stóð að stofnun beggja safnanna. Bæði Safnasafnið og Nýlistasafnið voru stofnuð til að koma í veg fyrir eyður mynduðust í íslenskri menningarsögu. Sýningin er bæði litrík og hrífandi… skemmtilega uppsett.










Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík 29/06/2025 – RX1R II, A7C R : 2.0/35mm Z, FE 1.8/20mm G, FE 2.8/100mm GM



