Hringurinn um norðurslóðir

Hringurinn um norðurslóðir

Hringborð norðurslóða / Arctic Circle stendur nú yfir í Reykjavík. Í þrjá daga munu 700 manns, vísindamenn, stjórnmálamenn og venjulegt fólk flytja erindi á um 200 viðburðum í Hörpu ráðstefnu- og tónlistarhöllinni í Reykjavík. Þetta er í tíunda skipti sem þessi árlega ráðstefna er haldin. Ólafur Ragnar Grímsson fyrrum Forseta Íslands og stofnandi Hringborðsins, sagði í opnunarræðu sinni að þetta hefði verið merkileg vegferð, málefni norðurslóða, sem nú eru komin í algjöran forgrunn á heimsvísu vegna þeirrar áskorunar sem við stöndum frammi fyrir í loftslagsmálum. Forsætisráðherra Íslands Katrín Jakobsdóttir sagði við opnunina að heimurinn stæði frammi fyrir ógn. Stórt og verðugt verkefni hér og á COP 28, Loftslagsráðstefnu SÞ, sem haldin verður í AUE í næsta mánuði, að sýna hve þjóðirnar á norðurslóðum standi frammi fyrir miklum breytingum af mannavöldum. Ísland ætlar að leggja sitt að mörkum til að markmiðum SÞ verði náð, sagði hún. Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, segir Hringborð norðurslóða afar mikilvægan vettvang. Margt hafi áunnist á norðurslóðum en margar áskoranir blasi við. Ekki bara í loftslagsmálum, Rússar með innrás sinni í Úkraínu geri norðurslóðir óöruggari, þegar Rússar, sem eiga þar stærsta landsvæðið fara ekki eftir neinum leikreglum. Það er því breytt heimsmynd á því svæði sem verður fyrir mestum áhrifum af loftslagsbreytingum í heiminum, einmitt hér á norðurslóðum.

Ólafur Ragnar Grímsson setur Hringborð norðurslóða / Arctic Circle
Mörg andlit Ólafs Ragnars í beinni útsendingu á opnunarræðunni
Forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir flytur ávarp
Vel var mætt að á opnunarviðburðin
Grænlensk tíska til sýnis í Hörpu, á vegum NORA
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, heldur tal
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur var út um allt í Hörpu
Hin 27 ára Romina Pourmokhtari loftslags- og umhverfisráðherra Svíþjóðar í pallborðsumræðum við hinn áttatíu ára gamla Ólafur Ragnar Grímsson

Ljósmyndir & text : Páll Stefánsson
Reykjavík 19/10/2023 –  A7RIII, A7R IV : FE 1.4/85mm, FE 1.4/24mm GM