Myndin er af Fossum í Svartárdal.

Húnavatnshreppur

Áin heitir Fossá og gilið Fossagil

Húnavatnshreppur hefur uppá fjölmargt að bjóða varðandi ferðaþjónustu og útisvist, enda er sveitarfélagið afar viðfeðmt nær frá sjó við Húnaflóa að Langjökli og Hofsjölki í suðri. Sögustaðir eru fjölmargir og unnið er að uppbyggingu á menningartengdri ferðaþjónustu. Á Þingeyrum hefur verið byggt þjónustuhús sem fengið hefur nafnið Klausturstofa og er hún bylting í þjónustu við þær þúsundir ferðamanna sem árlega skoða Þingeyrakirkju.

Húnavatnshreppur er meirihlutaeigandi að Hveravallafélaginu en félagið hefur það að markmiði að bæta aðgengi ferðafólks á Hveravöllum. IMG_1184Einnig rekur Húnavatnshreppur ferðaþjónustu í nokkrum hálendisskálum á svæðinu. Ferðaþjónusta er rekin í Húnavallaskóla, Dalsmynni , Húnaveri og víðar í sveitarfélaginu. Hesta og gönguferðir eru í boði á vegum ferðaþjónustuaðila og nokkrar af bestu laxveiðiám landsins liggja um Húnavatnshrepp og einnig eru í hreppnum fjölmörg gjöful veiðivötn. Á haustdögum hafa fjár og stóðréttir sífellt vaxandi aðdráttarafl en Undirfells- Auðkúlu- og Stafnsrétt eru meðal stæstu fjárrétta landsins. Að framansögðu er ljóst að fjölmargt er í boði fyrir þá sem leggja leið sína um Húnavatnshrepp og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Sögustaðir Vatnsdælu, Grettissögu og fleiri fornrita eru víða í héraðinu og má í því sambandi nefna Þórdísarlund , Hof, Ás og Þorbrandsstaði.