Norðausturhornið, er tæplega þriðjungur Íslands. Frá Akureyri til Egilsstaða, ef maður tekur strandlengjuna eru 585 fallegir kílómetrar. Á allri þessari leið, er Húsavík lang stærsti bærinn. Fjórum sinnum fjölmennari en næst stærsti bærinn, Vopnafjörður. Enda er Húsavík, vel í sveit sett, með náttúruperlur eins og Mývatn, Goðafoss, Dettifoss, Ásbyrgi og Grjótnes í næsta nágrenni. Húsavík er líka höfuðstaður hvaláhugamanna á Íslandi. Þar er ekki bara einstaklega gott Hvalasafn sem hefur verið starfrækt í þrjátíu ár, heldur má segja að Húsavík sé höfuðborg hvalaskoðunar á Íslandi. Fjögur fyrirtæki eru með ferðir út á Skjálfanda í hvalaskoðun. Á síðasta ári fóru tæplega 150 þúsund manns í hvalaskoðunarferðir frá Húsavík, sem var 24% aukning frá fyrra ári. Síðan má ekki gleyma því að árið 2021 var lagið Húsavík, tilnefnt til Óskarsverðlaunanna, en Hollywood kvikmyndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, var tekin upp og gerðist auðvitað í þessum 2.500 manna bæ við Skjálfanda. Frægasti sonur Húsavíkur, er auðvitað knattspyrnukappinn Eiður Guðjohnsen, margfaldur Evrópu, Spánar og Englandsmeistari með Barcelona og Chelsea. Icelandic Times / Land & Saga leit við á Húsavík, þessum frábæra bæ, rétt undir heimskautsbaugnum.








Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Húsavík : 06/02/2026 – GFX 100 RF, GFX 100 II – 4.0/35mm, 1.7/55mm



