Í Stafafellsfjöllum, upp af Lóni, austan Vatnajökuls, rétt norðan við Höfn í Hornafirði eru Lónsöræfi. Eru þið einhverju nær. Það eru fimm hundruð kílómetrar, sjö tímar plús frá höfuðborginni, og örugglega sjötíu og sjö tímar plús, á jafnfljótum til að upplifa þennan einstaka litríka stað. Stað sem er ekki bara úr alfaraleið, því að komast þangað þarf öflugan fjallabíl, til að komast þangað yfir óbrúuð jökulvötn. Síðan þarf gott úthald, gott nesti, og góða skó til að upplifa staðinn. Lónsöræfi er einstakur staður, gönguland fyrir þá sem unna fögrum jarðmyndunum, og að upplifa að vera einn, aleinn, símasambandslaus, í faðmi litríkíkra svipmikilla fjalla.







Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson
Lónsöræfi : 10/12/2025 – A7R IV, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/20mm G, 2.0/35mm Z



