Hún er ekki lengst, Þjórsá er lengri. Ekki vatnsmest, Ölfusá er vatnsmeiri, en kraftmest, og rennur 208 km frá Vatnajökli, norður í Öxarfjörð. Þetta er Jökulsá á Fjöllum, sem hefur verið friðuð síðan 2019. Vatnasviðið er nálægt 8% af Íslandi, eða 7.380 km². Einstök náttúruundur eru alla þessa leið Jökulsár til sjávar, eins og Holuhraun, Askja, Herðubreið og Jökulsárglúfur að Ásbyrgi. Síðan er auðvitað stutt í Mývatn, Húsavík, Tjörnes og Grjótnes norður á Malrakkasléttu. Það er einstakt á heimsvísu að svona stór og kröftug á hafi ekki verið beisluð. Eins er fuglalíf einstakt við ánna, þarna er griðastaður fyrir íslenska fálkann, sem unir sér hvergi betur á Íslandi. Hér koma myndir a þessari kraftmiklu perlu, sem er bæði hrjúf og blíð.








Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Jökulsá á Fjöllum : 01/04/2026 : A7R IV, RX1R II – 2.0/35mm Z, FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/135mm GM, FE 1.2/50mm GM



