Kiriyama Family og X-Heart

halda tónleika í Gym & Tonic 11. maí

Kiriyama Family hafa látið fara lítið fyrir sér undanfarið útávið þar sem þau hafa verið að vinna hörðum höndum að sinni annarri breiðskífu.   Kiriyama Family halda sína fyrstu tónleika í dágóðan tíma í Gym & Tonic á KEX Hostel næstkomandi miðvikudagskvöld kl. 21:00.  Með þeim til halds og traust er hin stórgóða sveit X-Heart sem rekur rætur sínar til Reykjavíkur og Stokkhólms.

11 X Heart

Kiriyama Family er sextett skipaður meðlimum úr ýmsum byggðarlögum á Suðurlandi og sendu þau frá sér sína fyrstu breiðskífu árið 2012 sem inniheldur vinsæl lög á borð við „Weekends“, „Sneaky Boots“ og „Heal“.

X-Heart er sjö meðlima hljómsveit sem lengst af hefur starfað í Stokkhólmi en sveitin starfar nú Reykjavík.  Sveitin spilar drungalegt og dansvænt popp og er með skemmtilegri nýrri böndum í íslensku tónlistarsenunni.  X-Heart hafa m.a. verið að hita upp fyrir Mammút og fleiri mætar sveitir.

 

Tóndæmi:

Kiriyama Family: https://www.youtube.com/watch?v=_BEsi3sQV58

X – Heart: https://soundcloud.com/xheartmusic/women-of-the-world

 

Tenglar:

 https://www.facebook.com/kiriyamafamily/?fref=ts

https://m.soundcloud.com/xheartmusic

https://kexland.is

 

Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 21:00 og er aðgangseyrir 1500 krónur.

Bestu kveðjur / Best regards

Benedikt Reynison

Events / Social Media

Mob. +354 822 2825