taka höndum saman
Mánaðarleg tónleikaröð hefst á 18. maí með Sóley, Þórunni Antoníu og Hildi
KEX Hostel hefur frá opnun 2011 lagt mikla áherslu á lifandi tónlist og hefur fjöldi íslenskra og erlendra tónlistamanna komið fram á KEX. Samstarfið með KÍTÓN undirstrikar og styrkir enn frekar tengsl KEX Hostel við fjölda listamanna og það er svo sannarlega mikið gleðiefni að tengjast KÍTÓN og munu KEX og KÍTÓN bjóða uppá mánaðarlega tónleika undir yfirskriftinni KEX+KÍTÓN. Arion Banki er bakhjarl tónleikaraðarinnar.
KÍTÓN stendur fyrir konur í tónlist og er tilgangur félagsins er að skapa jákvæða umræðu, samstöðu og samstarfsvettvang meðal kvenna í tónlist. Þeim tilgangi er náð með auknum sýnileika, viðburðum og stöðugu samtali við tónlistarkonur á
Íslandi. Samstarf KÍTÓN við KEX Hostel og Arion Banka rennur enn fremur stoðum undir það góða starf sem KÍTÓN er að vinna. Með tilstuðlan KÍTÓN er umræðan um stöðu kvenkyns laga- og textahöfunda jafnt sem flytjenda orðin fyrirferðameiri en hún hefur verið undanfarna áratugi. Félagið fer þvert á allar tónlistarstefnur, strauma, bakgrunn, menntun og jafnvel má sjá konur í félaginu sem starfa við tónlist sem umboðsmenn eða hafa atbeini eða starfa af tónlistargeiranum. Félagið fer ört stækkandi og eru nú um 246 félagskonur skráðar.
Fyrstu tónleikarnir verða haldnir á KEX Hostel á morgun 18.maí kl. 20:00. Tónlistarkonurnar sem fram koma eru Sóley, Þórunn Antonía og Hildur og eru þær allar meðlimir í KíTON.
Frítt er inn á þessa fyrstu tónleika KíTON og KEX Hostel.
kl. 20:00 Sóley
kl. 21.00 Þórunn Antonía
kl. 22.00 Hildur
Sóley Stefánsdóttir er ein af okkar fremstu tónlistarkonum, en hún á sér stóran aðdáendahóp um allan heim. Sóley gaf nýverið út sína aðra sólóplötu Ask The Deep sem hefur fengið lofsamlega dóma bæði hér heima og erlendis.
https://www.facebook.com/soleysoleysoley/?fref=ts
Hildur, sem einnig er söngkona Rökkurró, gaf út sitt fyrsta sólóverkefni á dögunum, lagið I’ll walk with you sem fór strax á toppinn á vinsældarlista Rásar 2 og hljómar nú á öllum útvarpsstöðvum landsins.
https://www.facebook.com/hihildur/?fref=nf&pnref=story
Þórunni Antoníu þarf vart að kynna, en hún gaf nýverið út sína þriðju sólóplötu í samstarfi við Bjarna M. Sigurðsson. Þórunn Antonía hefur unnið með mörgum af fremstu tónlistarmönnum heims auk þess að vera meðlimur í hljómsveitunum Junior Senior og Fields.
https://www.facebook.com/Thorunnantonia/?fref=ts
Nánari upplýsingar um KíTON og tónleikaröðina veitir Lára Rúnarsdóttir í síma 660 9436.