Kjalarnes & Kollafjörður

Kjalarnes & Kollafjörður

Undir rótum Esju, er vogskorið nes, Kjalarnes, með um 1.400 íbúum. Þetta fallega nes, norðan við Kollafjörð og sunnan Hvalfjarðar tilheyrir höfuðborginni, Reykjavík. Þrátt fyrir að Mosfellsbær með sinni þéttu byggð liggur á milli. Á Kjalarnesi, í landnámi Ingólfs Arnarsonar, fyrsta landnámsmannsins, var stofnað fyrsta héraðþingingið á Íslandi, Kjalarnesþing, undanfari Alþingis á Þingvöllum. Þingið var síðan flutt að Elliðavatni, en hét samt sem áður áfram Kjalarnesþing. Frá Kjalarnesi er ákaflega fallegt útsýni, suður til höfuðborgarinnar á Seltjarnarnesi, og alla leið yfir á Reykjanes yfir Kollafjörðinn í Faxaflóa. Þorpið á Kjarnesi heitir Grundarhverfi, þangað og í miðbæ Reykjavíkur er um 25 mín akstur.

Horft yfir til Reykjavíkur, glittir í Hallgrímskirkju til vinstri, fjallið Keilir á Reykjanesi á miðri mynd. Fyrir framan fjallið teiknast útlínur Landakotsspítala og Landakotskirkju
Í Grundarhverfi á Kjalarnesi búa rúmlega 700 manns, í nálægð við hafið, náttúruna og höfuðborgina. En Kjalarnes er nyrsti hluti höfuðborgarinnar.
Brautarholtskirkja, vestast á Kjarnesi, Esjan í bakgrunni. Kirkjan er afkomandi fyrstu kirkju á Íslandi sem landnámsmaðurinn Örlykur Hrappson reisti á Esjubergi rétt fyrir 900. Núverandi kirkja var byggð árið 1857 af Eyjólfi Þorvarðssyni, frá Bakka á Kjalarnesi.
Klébergsskóli, sem á fáein ár í það að hafa verið með starfsemi í hundrað ár, Esjan í bakgrunni
Hestar undir Esjurótum í 12 stiga frosti

 

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík 14/12/2022 : A7R III, A7C : FE 2.8/100mm GM, FE 1.4/24mm GM