Klukkan hálf tvö

Klukkan á Íslandi er band vitlaus. Hádegi, eða miðnætti, ef horft er sólstöðu í Reykjavík, er klukkan hálf tvö. Hér birtir seinna, sérstaklega í skammdeginu, en við fáum í staðin bjartari kvöld. Á bjartasta degi ársins, 21 júní er bjart allan sólarhringinn, en sólsetur í Reykjavík þrjár mínútur yfir miðnætti, sólarupprás, fimm mínútur í þrjú. Eftir sex mánuði, sem er ekki svo langur tími er sólarupprás í höfuðborginni klukkan 11.28 og sólsetur korter yfir þrjú, tæpum fjórum tímum síðar. Það var 1884, á ráðstefnu í Washington D.C. þar sem 24 tímabelti jarðar voru skipulögð og samþykkt, og Greenwich í London, varð núll punktur. Kína þriðja stærsta land veraldar, sem ætti að vera með fimm tímabelti, ákvað að að hafa bara einn tíma í öllu ríkinu, Peking tíma. Nepalir ákvæðu að vera nákvæmastir, en tíminn í Nepal er með tímann GMT + 5:45, en þá munar bara fjórum mínútum á því að sólin sé í hæstu stöðu í hádeginu, í höfuðborginni Katmandu. Þegar maður fer þaðan beint í norður, stutta leið yfir til Tíbet, munar 3 tímum og 15 mínútum hve Kínverjarnir eru fyrr með klukkuna, en íbúarnir rétt sunnan við Everest, í Nepal. Svipað ef þú ferð frá Norður Noregi og yfir landamærin til Rússlands, þá eru Rússarnir þremur tímum á undan frændum okkar í Finnmörku. 

Miðnætursól á Arnarvatnsheiði
Miðnætursólin dansar í Vopnafirði

Snartastaðarnúpur, Melrakkasléttu, nokkrum mínútum eftir miðnætti, um miðjan júní
Fjallsárlón, Öræfum um miðnætti
Rússnesk stytta í Pétursborg, en það munar þremur tímum á norður Noregi, og Kolaskaga, þegar maður fer yfir landamærin, og áfram til Múrmansk eða Pétursborgar
Kínamúrinn, en Kína, þriðja stærsta land veraldar hefur bara eitt tímabelti
Miðnæturgolf á Akureyri

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

20/06/2025 – RX1R II, A7C R , 2.0/35mm Z, FE 1.4/24mm GM