Lakagígar og Laki

12. Screen Shot. Texture of the land is fascinating.Lakagígar og Laki

laki1
Laki

Lakagígar er gígaröð á Síðumannaafrétti, um 25 km á lengd. Liggur hún frá móbergsfjallinu Hnútu til norðausturs og endar uppi í Vatnajökli. Gígaröðin dregur nafn af móbergsfjallinu Laka sem slítur hana sundur nálægt miðju.
laki3Lakagígar gusu árið 1783 hinu mesta hraungosi er sögur fara af á jörðinni. Kallaðist það Síðueldur eða Skaftáreldar. Gosið hófst hinn 8. júní. Gaus fyrst úr suðurhluta sprungunnar, sunnan Laka, þar sem hét Varmárdalur. Var hann þá algróinn. Varmárdalur er nú fullur af hrauni. Hraunflóðið féll niður gljúfur Skaftár og fyllti það en rann síðan austur með Síðuheiðum og breiddist svo út á láglendinu. Annar hraunstraumur féll austur í farveg Hverfisfljóts og rann niður í Fljótshverfi.
Laki er kollóttur móbergshnjúkur (818 m y.s.) á Síðumannaafrétti.c_documents_and_settings_hafdis_my_documents_my_pictures_laki_img_1761c_documents_and_settings_hafdis_my_documents_my_pictures_laki_img_1753c_documents_and_settings_hafdis_my_documents_my_pictures_laki_img_1732
c_documents_and_settings_hafdis_my_documents_my_pictures_laki_img_1731
Heimild: Íslandshandbókin útgáfa 1995.