Litir landsins

Yfir hásumarið er landið litríkt, ólíkt vetrinum, þar sem tveir litir eiga sviðið, hvítur og blár. Á hálendinu, eins og í Landmannalaugum, er bjart yfir, hundruð tegunda af gulum lit, eiga sviðið, meðan rétt sunnar í Hrafntinnuskeri er það rauður og svartur sem eru áberandi. Í Vestur-Skaftafellssýslu er grænn mosinn sem ræður ríkjum, meðan hálendið er svart, með örfáum grænum blettum, og hvítum sköflum sem gleymdu að hverfa. Í byggð, allan hringinn, er það græni liturinn sem hefur yfirhöndina, auðvitað með fjölbreyttum fjöllum sem breyta um lit eftir birtunni. Hér er kemur myndasyrpa af litadýrð landsins. 

Mosi, Eldhrauni við Laka
Hrafntinnuskeri
Jökulgil, Landmannalaugum
Miðnætursól, Garðskagavita, Reykjanesi
Þjórsá

 Göngugarpar arka í nýfallinn mjöll á Sólheimajökli

Á Sprengisandi

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Ísland 11/07/2025 – A7C R, A7R III : FE 1.8/135mm GM, FE 1.4/85mm GM, FE 1.2/50mm GM, FE 1.4/24mm GM