Lufthansa hefur flug til Íslands

Lufthansa hefur flug til Íslands
Umheimurinn opnast

Þýska flugfélagði Lufthansa kynnti fyrir skemmstu farþegaflug fjórum sinnum í viku til og frá Íslandi í gegn um Frankfurt og München, sem býður íslenskum ferðalöngum upp á fjölda nýrra möguleika til að komast til framandi áfangastaða um allan heim.

11
Svæðisstjóri Lufthansa í Evrópu, Christian Schindler.

Svæðisstjóri Lufthansa í Evrópu, Christian Schindler, segist sjá mikil tækifæri í flugi á Íslandi og að flugfélagið hugsi þjónustu við Íslands til lengri tíma litið. “„Við erum mjög spennt fyrir því að bjóða íslenskum viðskiptavinum okkar beint flug í gegn um stærstu tengiflugvelli okkar. Þeir ná til fjölda spennandi áfangastaða í þjónustuneti okkar, en Frankfurt- og München  flugið eru tímasett þannig að viðskiptavinir okkar frá Íslandi geta með góðu móti náð áframhaldandi tengiflugi til áfangastaða í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Asíu,”, segir Christian.

1019_02_0843kFramandi áfangastaðir aðgengilegir                    
Með viðkomu á þessum tengiflugvöllum Lufthansa opnast íslenskum flugfarþegum dyr að 190 áfangastöðum í Evrópu og víðsvegar um heim, í alls 76 löndum, en sem dæmi um áfangastaði má nefna: Tókýó, Hong Kong, Bangkok, Jakarta, Delhi, Rio de Janeiro, Buenos Aires, Sao Paulo, Bogota og Jóhannesarborg.  Þökk sé aðildar Lufthansa að Star Alliance flugbandalaginu þarf aðeins að innrita farangur einu sinni við brottför. Frankfurt flugvöllurinn er fjögurra stjörnu flugvöllur og þjónar yfir 60 milljónum flugfarþega á ári.

Flugið hefst 2. maí og lýkur 26. september. Frankfurt flugið verður á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum í Airbus A319 og A320 vélum, en München flugið verður á sunnudögum. Christian bendir einnig á að allt langflug frá Frankfurt og München verði í nýjum vélum með öllum mögulegum aukabúnaði.

Business Class Relaxed FlyingNýjir ferðamannastraumar
Christian á von á því á sama tíma að nýjir ferðamannastraumar til Íslands verði til, þar sem flugleiðirnar frá Frankfurt og München opni fyrir ferðalög til Íslands frá þeim áfangastöðum sem tengiflugvellirnir þjóna og nefnir hann meðal annars að fjöldi ferðamanna frá Asíu, Miðausturlöndum og Eyjaálfu gæti þannig aukist.

Áhuginn á Íslandi er mikill að sögn Christian, en í fyrstu stóð til að aðeins yrði flogið tvisvar í viku, en þau hafi öll verið uppbókuð fljótt og því hafi tveimur til viðbótar verið bætt við. “„Við finnum virkilega fyrir því að Ísland er vinsæll áfangastaður um þessar mundir. Grófgert landslagið, hverirnir, heitu lónin og margt annað gera Ísland að einstökum áfangastað svo ekki sé nú talað um frábærann matinn,” ,segir Christian.
            
Business Class New ServiceÓhræddur við samkeppni
Christian segist óhræddur við samkeppni á markaði og á von á að Lufthansa muni vaxa ört og geti aukið við flugið þegar á líður. Áætlanir séu um að lengja sumartímabilið í fyrstu og þegar til lengri tíma sé litið verði möguleikinn á flugi allan ársins hring skoðaður.

“„Fólk mun alltaf vilja ferðast og til þess þarf það að hafa sanngjarna og áhugaverða valkosti. Við erum auðvitað í samkeppni við önnur flugfélög á öllum okkar flugleiðum og erum því vön samkeppninni. Við bjóðum hins vegar upp á mjög samkeppnishæft verð og hágæða þjónustu sem segir sína sögu og erum við því viss um að íslenskir viðskiptavinir muni taka vel í þjónustu okkar,” ,“ segir Christian.

Gæði og samkeppnishæft verð er eitthvað sem Christian segir Lufthansa leggja mikið upp úr og bendir á að fyrstu og ódýrustu sætin fram og til baka kosti aðeins  rúmlega þrjátíu þúsund krónur og í þeim sé allt innifalið, þar á meðal matur og farangursgjald. “„Fólk sem hefur flogið með okkur veit að hverju það gengur og höfum við þannig mikla trú á þessari nýju þjónustu okkar við Íslendinga,” ,“ segir Christian að lokum.